|
Eftir að hafa starfað hjá Akzo Nobel í 51 ár og þjónustað Ísland í 20 ár þá sest þessi mikli snillingur í helgan stein. Þökkum við Lars fyrir hans þjónustulund og fróðleik í gegnum árin, er það með miklum trega sem við kveðjum Lars en óskum við honum hins vegar velfarnaðar í framtíðina. Við starfi Lars Göran tekur nafni hans Lars Göran Månsson við sem er gott því þá þarf ekki að muna annað nafn. Myndin hér til hliðar var tekin í síðustu heimsókn Lars og er hann lengs til hægri á myndini. Við Lars Göran segjum við " Tack för allt Lars och ha det bra í framtíden".
|
|
Erum komin með höldur fyrir barnaherbergið á lager! Höldurnar henta vel til að lífga upp á komóðuna eða fataskápinn í barnaherbergið!
|
|
Axel Eyjólfsson afhendir Svani Ingvarsyni kennslustjóra tréiðnaðardeildar fullkomna tölvustýrða Martin T60 Classic plötusög. Nýja sögin sem leysir af hólmi yfir 30 ára gamla sög sem hefur verið í notkun frá stofnun skólans.
|
|
Axel Eyjólfsson afhendir Stefáni Jóhannsyni Martin T75 plötusög. Um er að ræða fullkomna tölvustyrða plötusög sem er með stóran snertiskjá, 13,5 hp stiglausan mótor, blað er hallanlegt í báðar áttir o,fl.
|
|
Erum með gott úrval af þvingum í ýmsum stærðum og gerðum. Hefðbundnar þvingur í mörgum stærðum, einnarhandar þvingur, kantþvingur og hurðaþvingur.
|
|
|